Kakó (Ceremonial grade)

Kakó (Ceremonial grade)

Verð 900 kr
/
Stærð
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

100% lífrænt og óerfðabreytt hreint kakó frá Gvatemala sem er sannkölluð ofurfæða. Þetta kakó kemur frá Dalileo Chocolat í Polochic dalnum í norðurhluta landsins þar sem notast er við umhverfisvænar ræktunaraðferðir, með tilliti til orkusparnaðar, sjálfbærni og skógræktar.

Kakóið er svokallað “ceremonial grade cacao" og sannkölluð ofurfæða. Hreint kakó inniheldur mesta magn magnesíum og andoxunarefna nokkurrar plöntu, er mjög góður náttúrulegur orkugjafi og ástardrykkur. Það inniheldur phenylethylamine (PEA), efni sem við framleiðum þegar við verðum ástfangin. PEA skerpir líka fókus og athygli. Anandamide, sem einnig er þekkt sem "the bliss chemical", er endorfín sem mannslíkaminn framleiðir og hefur aðeins fundist í einni plöntu – Cacao Theobroma. Kakó er blóðflæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir framleiðslu á gleðiboðefninu serótónín, lækkar streituhormónið kortisól og örvar vellíðunarstöðvar í heilanum og framleiðslu á endorfíni. Að auki inniheldur það króm, theobromine, manganese, sink, kopar, járn, C vítamín, omega 6 fitusýrur og tryptophan svo eitthvað sé nefnt af þeim góðu efnum sem kakóið inniheldur. 

Fjölmargar rannsóknir sem gerðar hafa verið, meðal annars við Yale og Oxford, staðfesta virkni kakóbaunarinnar og stöðu hennar sem heilsusamleg og heilsueflandi fæða.

Dagleg notkun: Tilvalið að útbúa heitan kakóbolla, skella kakói í hristinginn, út á grautinn eða til dæmis í hnetumixið. 

Framleiðsluferli: Kakóbaunirnar eru gerjaðar í sedrusviðarkössum og sólþurrkaðar eftir gerjun. Þær eru síðan léttristaðar, skurnin tekin af þeim og kakóið malað í massa sem harðnar. Kakómassinn viðheldur náttúrulegu fitumagni og mjúk vinnslan varðveitir mikilvæg næringarefni sem annars tapast eftir því sem kakóbaunin er meira unnin.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Nýlega skoðað