Skrúbbhanski úr nettlu, bómull og kopar

Skrúbbhanski úr nettlu, bómull og kopar

Skrúbbhanski úr nettlu, bómull og kopar

Verð 1.790 kr
/
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Lagerstaða - 1 stk til á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

Þessi skrúbbhanski er sérstakur eða úr nettlu, bómull og koparþráðum og hentar vel til að þurrbursta sem og blautbursta húðina. Einnig hægt að nota til þvotta eða í öflugt nudd.

Koparþræðirnir hafa bakteríudrepandi eiginleika, þeir hitna við létt nudd og veita því hlýja tilfinningu og hita á meðan á nuddi stendur.

Nudd og skrúbbhanskar örva blóðrásarkerfið, gott er að nudda létt í hringi og byrja frá tám upp líkamann í átt að hjartanu svo frá fingrum í átt að hjartasvæði. Eftir skrúbbið er dásemd að bera líkamsolíu eða krem á húðina.

60% nettla, 20% bómull og 20% koparþráður - skrúbbhanskinn er fínofinn.

Má þvo á 50° C - leyfið skrúbbhanskanum að þorna á milli notkunar.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Meira frá REDECKER
Rakbursti úr beyki
1.890 kr
Málningarbursti
990 kr
Nýlega skoðað