Black Pepper - lífræn Ilmkjarnaolía

Black Pepper - lífræn Ilmkjarnaolía

Black Pepper - lífræn Ilmkjarnaolía

Verð 2.290 kr
/
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

Örvandi og orkugefandi fyrir líkama og huga. ilmkjarnaolían er oft notuð í nuddolíur fyrir þreytta vöðva og íþróttafólk þar sem hún hefur hitandi og slakandi áhrif. Má einnig nota í kerti og sápur og frábær sem heimilisilmur í gufutæki, í nuddolíu, baðið, heimilisþrifin og þvottinn.

Athugið að ilmkjarnaolíur eru ekki bornar beint á húð heldur er þeim blandað saman við aðrar hlutlausar olíur eða krem í litlu magni. 

Til að fá frískandi ilm af þvottinum, til dæmis með þvottaskeljunum frá Living naturally sem við hjá Mena notum allar fyrir okkar þvott og bjóðum upp á hér á síðunni, þá er gott að setja nokkra dropa af olíunni í þvottavélina ásamt þvottaskeljunum.

Fyrir heimilisþrifin þá er til dæmis gott að setja nokkra dropa af olíunni í vatn og edik til að þurrka af eða skúra. Það má líka nota olíuna beint á klísturbletti (ekki samt á pússaðan eða unnin við og prófið alltaf fyrst á litlu svæði sem sést ekki).

Innihald 10 ml.


Olían kemur í lítilli glerflösku með dropaskammtara og tappa úr harðplasti.

HandgertVeganLifræntVistvaentNiðurbrjótanlegtÁn dýratilrauna

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Nýlega skoðað