Regnbogavinir

Regnbogavinir

Verð 8.490 kr
/
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

Þessir sjö vinir eru einstaklega skemmtilegir til að raða, flokka og nota í fjölbreyttan leik þar sem ímyndunaraflið ræður för. Hver einasta viðar fígúra er handmáluð og er því einstök!

Koma sjö saman í pakka ásamt litlum skálum á hringlaga bakka. Viðurinn er litaður með vatnsblönduðum og eiturefnalausum lit.
Stærð: 19cm (bakki) og 6,5cm (h) (viðarfígúra)

Grimms leikföngin eru framleidd í Evrópu úr trjám sem sótt eru úr sjálfbærum skógum. Framleiðslan fer fram í sérvöldum vinnustofum víða um Evrópu og eru einungis náttúruleg litarefni notuð og flest leikföngin handpússuð sem gerir viðinn náttúrulegri. Lögð er áhersla á tímalausa hönnun sem endist lengi og erfist jafnvel á milli kynslóða. Leikföngin frá Grimms henta mjög breiðum aldri enda óteljandi möguleikar og hugmyndir sem hægt er að fá í leik með opnum efnivið eins og þau eru.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Meira frá Viðarleikföng
Þrifasett
5.890 kr
Nýlega skoðað