Alepposápa - 100% ólífuolía

Alepposápa - 100% ólífuolía

Alepposápa - 100% ólífuolía

Verð 990 kr
/
  • Frítt á pósthús/póstbox/Dropp afhendingarstað ef verslað er fyrir yfir 15.000kr
  • Umhverfisvænar og vandaðar vörur
  • Á lager
  • Vara á leiðinni
með VSK Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli

100% aleppo sápa er mjög mild eingöngu úr olífuolíu, ætti að henta öllum, líka þeim sem eru með mjög viðkvæma húð. Sápan er líka frábær í uppvaskið og ætti að endast marga mánuði ef hún er látin standa á undirlagi sem heldur henni þurri milli notkunar.
​​​​​
Grunnur Alepposápunnar er olífuolía sem eru blandaðar lárviðarolíu í mismiklu magni, Við bjóðum við upp á 100% olífuolíusápu og blandaða með 15%. Lárviðarolía er ekki bara rakagefandi heldur einnig bakteríu- og sveppadrepandi. Lárviðarolían er hins vegar það áhrifarík að fólk með mjög viðkvæma húð ætti að fara varlega í sápur með hátt hlutfall af lárviðarolíu (> 20%). 

Af hverju Aleppo sápa?
– Sápa úr einföldum, hreinum innihaldsefnum, mild og rakagefandi og hentar flestum
– Margnota; fyrir andlit, hendur, líkama, hár og rakstur og m.a.s. uppþvottinn
– Fyrir hárþvott: 100% Alepposápa hentar yfirleitt betur feitu hári þar sem ólífuolían er þurrkandi fyrir hárið, ef þú ert með þurrt hár veldu stykki með lárviðarolíu.
– Ef þú ættir að velja eina sápu á ferðalagið væri Aleppo sápa kjörin
– Plastlausar og úr lífniðurbrjótanlegum innihaldsefnum og án allra tilbúinna aukaefna, s.s. litar- og lyktarefna
– Kaup á Aleppo sápu styrkja lítil fjölskyldufyrirtæki sem viðhalda aldagamalli handverkshefð
– Uh, Ofurfallegar og góðar

Efni, umbúðir og framleiðsla
– 
þyngd: 
– Innihaldsefni: Ólífuolía, vítissódi (sem gufar upp við sápugerðina), vatn
– PH gildi 8 – 9
– Án pálmólíu, dýraafurða, litar- og ilmefna og rotvarnarefna.
– Umbúðalausar
– Framleitt af litlu fjölskyldufyrirtæki í Aleppo, Sýrlandi

Notkun og Umhirða
– Til hárþvotta: Nuddið stykkinu í hársvörðin og nuddið sápufroðunni sem myndast í hárið. Skolið sápuna mjög vandlega úr hárinu. 
– Passaðu að láta sápustykkið standa á þurrum stað sem safnar ekki vatni þegar það er ekki í notkun. T.d. með því að láta það standa á sápudiski eða lúffa svampi.
– Geymist alla vega sex ár

Sagan
Alepposápugerð byggir á þúsund ára sápuhefð, gerð sápunnar er hægt ferli. Sápan er blönduð í nokkra daga við 200°hita í stórum pottum, síðan er dreift úr henni á gólf þar sem hún er skorin í kubba og stimpluð með upprunastimpli framleiðslufyrirtækisins. Eftir það er hún hlaðin upp eins og múrsteinar en þó þannig að sem mest bil sé milli hverrar sápu svo súrefni komist sem best að hverju stykki. Svona er sápan látin standa í 6 – 12 mánuði, við það harðnar hún og verður endingarbetri. Aleppo sápur missa um 30% af ummáli sínu í þessu ferli. Sápurnar eru því aldrei nákvæmlega jafn stórar eða þungar og má segja að hver og ein sé einstök.

Aleppo sápan 'er í raun' græn. En hún gyllist við að standa og þorna mánuðum saman. Því er hún gyllt að utan en græn að innan.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Nýlega skoðað